Ljúf peysa – uppskrift

500kr.

Ljúf peysa er einföld uppskrift og hentar vel fyrir byrjendur. Peysan er prjónuð á stóra prjóna og er því mjög fljótlega unnin. Garnið sem notað er í hana er alveg einstaklega mjúkt, hlýtt en líka létt.

Category:

Description

Lýsing á sniði

Ljúf peysa er prjónuð slétt ofan frá og niður í hring. Fitjað er upp á hringprjóna og prjónað í hring með aukningum til að móta berustykkið. Þegar réttum lykkjufjölda er náð er lykkjum fyrir ermar þrædd á aukagarn og búkurinn prjónaður áfram niður í hring. Að því loknu eru lykkjur teknar upp í handarkrika og ermar prjónaðar hringinn niður. Peysan er kláruð með einföldum frágangi þar sem endar eru faldir og flíkin mótuð með þvotti (blocking).

Upplýsingar um vöru

Stærðir:
– Ein stærð (S, M og L – hentar á mismunandi hátt).
Mál eftir frágang:
– Umfangi brjóstkassa: ca. 110 cm (teygjanleg og aðlögunarhæf vegna eðli sniðs og garnsins).
– Lengd að framan, frá öxl niður: ca. 55 cm (fer eftir því hversu langa þú vilt prjóna hana).
– Ermalengd, frá handarkrika niður: ca. 30 cm (auðvelt að lengja eða stytta eftir óskum).
Garn: Drops Melody (71% álpakka, 25% ull, 4% polyamide, 140 m / 50 g)
– Magn: 3 dokkur (3 × 50 g).
Prjónar:
– 40 cm og 60 cm hringprjónar nr. 10
Prjónafesta (eftir frágang):
– 10 lykkjur × 12 umferðir = 10 × 10 cm í sléttu prjóni
Annað sem þarf:
– 5 prjónamerki
– Nál til frágangs
– Skæri
– Málband

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Ljúf peysa – uppskrift”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *