weavy care tips

(English below)

Það er mikilvægt að meðhöndla allar vörur frá Weavy af varúð. Stundum getur eitthvað óumflýjanlegt komið upp sem veldur skemmdum á flíkum, en margt er hægt að fyrirbyggja með réttri umönnun. Hér koma nokkur tips til að halda vörum frá weavy í sem besta ásigkomulagi.

Allar weavy flíkur:

Almennt er mikilvægt að þvo Weavy flíkur sjaldan. Ef þú þarft eða vilt þvo Weavy flík, mæli ég með að fylgja þvottaleiðbeiningunum hér að neðan. Þegar kemur að því að geyma Weavy flíkur, ráðlegg ég að hengja þær ekki upp á herðatré, heldur geyma þær í skáp. Að hengja þær upp getur valdið því að flíkurnar teygist og aflagist með tímanum. Best er að geyma flíkurnar samanbrotnar í skúffu og gæta þess að þær liggi ekki undir neinu þungu sem gæti kramið flíkina.

Loopy-Weavy taska úr ull:

Ég mæli með að þvo Loopy-Weavy töskuna eins sjaldan og mögulegt er. Ef það er nauðsynlegt að þvo hana, er mikilvægt að fylgja þvottaleiðbeiningunum hér að neðan. Gætið þess að halda töskunni frá grófum hlutum, eins og stórum smellum eða frönskum rennilásum í fötum, þar sem slíkt getur valdið því að taskan þæfist. Einnig er mikilvægt að fylla töskuna ekki of mikið, þar sem það getur valdið því að hún teygist með tímanum.

Þvottaleiðbeiningar

Það getur reynst snúið að þvo flíkur sem eru handgerðar og sérstaklega ef þær eru gerðar úr náttúrulegu efni. Það er ekki hægt að henda bara í þvottavél og vona það besta.. það má alveg en ég tek þá amk enga ábyrgð á flíkinni eftir það! En ef þú vilt halda weavy flíkinni þinni í toppstandi sem lengst þá eru hérna leiðbeiningar um hvernig best er að þvo þær <3

  1. Setjið volgt vatn alls ekki heitara en 30 gráður í bala eða baðkar. 
  2. Bættu ullarsápu í vatnið (magn er alltaf tilgreint á umbúðum). Ég mæli með ullarsápu frá Lopi.
  3. Dýfðu flíkinni í vatnið og leyfðu henni að liggja í smá stund. Hrærðu flíkinni upp úr sápunni með höndunum í smá stund. Ef það er blettur í flíkinni þá geturu prófað að nudda varlega í smá stund með sápu og séð hvort hann fari úr. 
  4. Tæmdu balann og skolaðu alla sápu úr flíkinni með volgu vatni.
  5. Endurtaktu skref 3 með ullarnæringu ef þið viljið (ég mæli með að gera það sérstaklega ef þið eruð að þvo loopy-weavy bag úr ull). 
  6. Næst skaltu vinda eins mikið af vatninu úr flíkinni og þú getur án þess að teygja á henni. Þetta er mikilvægt til að halda lögun flíkarinnar. 
  7. Taktu fram stórt handklæði og sléttu úr flíkinni ofan á handklæðið. Hér er hægt að laga flíkina til eins og þú vilt.
  8. Rúllaðu flíkinni inn í handklæðið og stígðu ofan á það til að ná sem mestu vatni úr. 
  9. Leggðu flíkina slétt ofan á þvottagrind eða annað flatt undirlag sem leyfir flíkinni að anda vel.
  10. Leyfðu flíkinni að þorna í amk 12 klst. 

Ef það er eitthvað sem þú skilur ekki eða ert í vandræðum með máttu auðvitað senda mér skilaboð í gmail eða á instagram og ég mun glöð reyna að hjálpa!

English version

It’s important to handle all Weavy products with care. Sometimes, unavoidable incidents can cause damage to garments, but many issues can be prevented with proper care.

All Weavy Garments:

In general, it’s important to wash Weavy garments infrequently. If you need or want to wash a Weavy garment, I recommend following the washing instructions below. When it comes to storing Weavy garments, I advise against hanging them on hangers. Instead, store them in a closet. Hanging them can cause the garments to stretch and lose their shape over time. It’s best to store the garments folded in a drawer, ensuring they are not placed under anything heavy that could crush them.

Loopy-Weavy Wool Bag:

I recommend washing the Loopy-Weavy bag as infrequently as possible. If it’s necessary to wash it, it’s crucial to follow the washing instructions below. Be careful to keep the bag away from rough items, such as large buttons or Velcro on clothing, as these can cause the bag to felt. It’s also important not to overfill the bag, as this can cause it to stretch over time.

Washing instructions

It can be tricky to wash handmade garments, especially if they are made from natural materials. You can’t just throw them in the washing machine and hope for the best… well, you can, but I take no responsibility for the garment after that! However, if you want to keep your Weavy garment in top condition for as long as possible, here are some instructions on how best to wash them <3

  1. Fill a basin or bathtub with lukewarm water, not exceeding 30 degrees Celsius.
  2. Add wool soap to the water (the amount is always specified on the packaging). I recommend wool soap from Lopi.
  3. Dip the garment in the water and let it soak for a little while. Gently swirl the garment in the soapy water with your hands for a few minutes. If there is a stain on the garment, you can try gently rubbing it for a while with the soap to see if it comes out.
  4. Empty the basin and rinse all the soap out of the garment with lukewarm water.
  5. Repeat step 3 with wool conditioner if you like (I recommend doing this, especially if you are washing a loopy-weavy bag made of wool).
  6. Next, squeeze out as much water from the garment as you can without stretching it. This is important to maintain the shape of the garment.
  7. Lay out a large towel and smooth the garment flat on top of it. Here you can adjust the garment to the shape you want.
  8. Roll the garment up in the towel and step on it to remove as much water as possible.
  9. Lay the garment flat on a drying rack or another flat surface that allows the garment to breathe well.
  10. Let the garment dry for at least 12 hours.

If there’s anything you don’t understand or if you’re having trouble, feel free to send me a message on Gmail or Instagram, and I’ll be happy to help!